Rannsóknarmiðstöð skapandi greina hjá Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands kynnti á dögunum árangursmat á starfsemi Hönnunarsjóðs Auroru og Kraums tónlistarsjóðs. Höfundar skýrslunnar eru þau Margrét Sigrún Sigurðardóttir og Tómas Viktor Young.

Markmið með gerð árangursmatsins var fyrst og fremst að aðstoða stjórnendur sjóðanna til að meta það starf sem á sér stað innan sjóðanna, hvaða áhrif það hefur á frama styrkþega og einnig hönnunar- og tónlistarsamfélagið í víðari skilningi. Einnig var árangursmatið hugsað sem lærdómur um það hvernig best er að standa að styrkveitingum, hvaða form gefur bestan árangur, hvaða aðferðarfræði hentar best þeim sem sækja um styrki og hvaða ásýnd svona sjóðir hafi gagnvart umsækjendum og samstarfsaðilum.

(umfjöllun á menningarpressunni)