Þriðja úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru 2010 fer fram í Október. Umsóknarfrestur rann út 12.ágúst s.l..

Sjóðurinn er opinn öllum hönnuðum og arkitektum. Við notumst ekki við hefðbundin umsóknareyðublöð, en umsóknir skulu innihalda yfirlit yfir verkefnið, markmið þess og framtíðarsýn og grófa fjárhagsáætlun. Verkefnið skal auk þess hafa skilgreint upphaf og endi. Ekki er veittur styrkur til fjármögnunar á framleiðslu.

Stjórn sjóðsins tekur ákvarðanir um allar úthlutanir með framkvæmdastjóra, en sérstakt fagráð fólks úr hönnunargeiranum og viðskiptalífinu er stjórn og framkvæmdastjóra til ráðgjafar eftir því sem þurfa þykir.

Framkvæmdastjóri veitir góðfúslega allar frekari upplýsingar og aðstoð við umsóknir. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Mælst er til þess að umsóknir séu sendar bæði rafrænt og útprentaðar ásamt sýnishornum eftir því sem tilefni er til:

e-mail: hlin@honnunarsjodur.is

Póstfang:
Hönnunarsjóður Auroru
Pósthólf 590
121 Reykjavík
s. 7721200