Hönnunarsýningin „Í barnastærðum"
Samstarfsaðili: Hafnarborg
Tinna Gunnarsdóttir er sýningarstjóri og stendur sýningin til 2.maí 2010. Sýningin veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Í tilefni sýningarinnar hafa þrír hönnuðir hannað nýja hluti fyrir börn, en þetta nýsköpunarverkefni var unnið í samstarfi við Hönnunarsjóð Auroru. Markmiðið með þessu nýsköpunarverkefni innan sýningarinnar er tvíþætt; að stuðla að nýsköpun á þessum vettvangi og að styðja við efnilega hönnuði. Þremur hönnuðum hefur verið boðið að hanna sérstaklega fyrir sýninguna þrívíðan hlut/húsgagn ætlað börnum. Miðað er við að hluturinn hafi notagildi og geti farið á almennan markað í framhaldinu. (Meira um nýsköpunarverkefnið, hönnuðina og sýninguna)Hönnuðurnir þrír sem tóku þátt í nýsköpunarverkefninu eru:
Hanna Jónsdóttir
Verkefni: Þéttsetrið
www.hannajonsdottir.comHalli Civelek
Verkefni: Dót
www.icomefromreykjavik.comRagnheiður Ösp
Verkefni: Púki og lamb
www.umemi.comHagnýtt hádegi; Fyrirlestraröð
Samstarfsaðili: Hönnunarmiðstöð Íslands
Um er að ræða fyrirlestraröð um hagnýt mál sem mörg hver brenna á hönnuðum, s.s. höfundarréttur og vsk, útflutningur ofl. Efni fyrirlestranna verður aðgengilegt hér og á vef hönnunarmiðstöðvar www.honnunarmidstod.is. Fyrirlestrarnir fara fram í hádeginu í Þjóðminjasafninu.Dagskrá
Hönnunarsýningin „Íslensk samtímahönnun 2009“
Samstarfsaðili: Hönnunarmiðstöð Íslands og Listasafn Reykjavíkur
Elísabet V. Ingvarsdóttir er sýningarstjóri. Sýningin var sett upp á Kjarvalsstöðum sem hluti af Listahátíð í Reykjavík í maí 2009, en er hugsuð sem farandssýning í tengslum við sendiráð Íslands erlendis til kynningar á íslenskri hönnun. Hönnunarsjóðurinn styrkir þann hluta sýningarinnar sem hlotið hefur heitið “Vaxtarsprotar” þar sem 5 efnilegir hönnuðir eru kynntir til leiks. Þessi hluti sýningarinnar er unnin fyrir tilstuðlan Hönnunarsjóðsins með það fyrir augum að styðja við grasrót hönnunar á Íslandi. meira um hönnuðina og verk þeirra á sýningunniVaxtarsprotarnir eru:
Í nóvember 2009 kom út bók um sýninguna, á íslensku og ensku sem Crymogea gaf út, en Hörður Lárusson hjá Vinnustofu Atla Hilmarssonar hannaði. lesa frétt og þann 26.febrúar 2010 opnaði sýningin í Danmarks Design Centerfrásögn og myndir á www.honnunarmidstod.is
Dagur Óskarsson
Verkefni: Dalvíkursleðinn
www.daguroskarsson.com
Jón Björnsson
Verkefni: Sandvasar
www.bjoss.com
Friðgerður Guðmundsdóttir
Verkefni: Stuðlar
www.fridgerdur.com
Sóley Þórisdóttir
Verkefni: Áhöld
www.soleythoris.com
Þórunn Árnadóttir
Verkefni: Klukka
www.thorunndesign.comÍ nóvember 2009 kom út bók um sýninguna, á íslensku og ensku sem Crymogea gaf út, en Hörður Lárusson hjá Vinnustofu Atla Hilmarssonar hannaði. lesa frétt og þann 26.febrúar 2010 opnaði sýningin í Danmarks Design Centerfrásögn og myndir á www.honnunarmidstod.is









