Hönnunarsjóður á Menningarnótt
19 August 2010

Nágrannarnir í Vonarstræti 4b: Hönnunarsjóður Auroru, Hönnunarmiðstöð Íslands og Kraumur tónlistarsjóður sameinast um dagskrá og verða með opið hús á Menningarnótt.

Lifandi upptökur frá HönnunarMarsi 2010, hljómsveitin Orphic Oxtra, svipmyndir frá hönnunarsýningunum Iceland Contemporary Design og Náttúran í hönnun og margt fleira.

Opið hús og dagskrá frá kl 18-22. Allir velkomnir!!

vorúthlutun 19.maí 2010
19 May 2010

Vorúthlutun Hönnunarsjóðs Auroru fór fram í dag, 19.maí 2010. Þetta var önnur úthlutun þessa árs og sú fjórða frá því sjóðurinn var stofnaður fyrir rétt rúmu ári síðan, þann 13.febrúar 2009. Ákveðið var að hafa þrjár úthlutanir á þessu ári til þess að koma til móts við hraða verkefna í faginu en sú fyrsta fór fram 17.febrúar s.l. þar sem 7.880.000 kr. var úthlutað. Í dag var úthlutað 4.000.000 kr. Þar með hefur um 33.000.000 kr. verið úthlutað til um 25 hönnuða og verkefna frá því Hönnunarsjóðurinn hóf starfsemi sína. Sjóðurinn hefur leitast við að styrkja hönnuði með heilsteypta viðskiptahugmynd og skýra framtíðarsýn með það í huga að stuðningur sjóðsins hafi afgerandi áhrif í ferli viðkomandi hönnuðar í átt til frekari fjármögnunarmöguleika og/eða sjálfbærni. Í því samhengi hefur verið stefna hjá Hönnunarsjóðnum að veita hönnuðum einnig ráðgjöf í viðskiptum, eftir því sem við á.

Þeir sem hlutu styrki í dag voru Hreinn Bernharðsson til starfsreynslu hjá Hrafnkeli Birgissyni, Hafsteinn Júlíusson til vöruþróunar og markaðssetningar erlendis á vörulínu sinni HAF, Sigríður Sigurjónsdóttir til sýningahalds í SPARK design space, Una Hlín Kristjánsdóttir hlaut styrk til viðskiptaráðgjafar með fatamerki sitt Royal Extreme og Hönnunarsjóðurinn mun veita viðurkenningar í fatahönnunarsýningu LungA, listahátíð ungs fólks í sumar. (voruthlutun / textinánar)

Erlend fjölmiðlaumfjöllun um HönnunarMars
22 April 2010

Hönnunarmiðstöð Íslands hefur tekið saman erlenda umfjöllun um HönnunarMars og íslenska hönnuði í því samhengi, eins og sjá má hér. Hönnunarsjóður Auroru styrkti Hönnunarmiðstöð vegna komu um 15 erlendra blaðamanna og var það framlag sjóðsins til HönnunarMars að þessu sinni.

Næsta úthlutun fer fram 19.maí
21 April 2010

Næsta úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru fer fram 19.maí næst komandi. Umsóknarfrestur rann út 16.apríl s.l. Alls bárust 75 umsóknir frá hönnuðum og arkitektum af ólíkum toga. Allir umsækjendur fá svar fyrir 19.maí. Þriðja og síðasta úthlutun þessa árs úr Hönnunarsjóði Auroru er áætluð á haustmánuðum og verður umsóknarfrestur auglýstur sérstaklega.

Umsóknarfrestur FRAMLENGDUR til 16.apríl
08 April 2010

Umsóknarfrestur vegna úthlutunar í maí n.k. hefur verið framlengdur til 16.apríl kl 16:00. Vinsamlegast sendið umsóknir bæði rafrænt (e-mail) og útprentaðar (póststimpill gildir).

Næsti umsóknarfrestur er 12.apríl n.k.
31 March 2010

Næsta úthlutun fer fram í maí, en umsóknarfrestur er til 12.apríl kl. 16:00. Mælst er til þess að umsóknir séu sendar bæði rafrænt og útprentaðar ásamt sýnishornum eftir því sem tilefni er til. Um er að ræða aðra úthlutun úr sjóðnum 2010, en stefnt er að þriðju og síðustu úthlutun ársins í September. Lesa meira um styrkt verkefni 2010, 2009 og um umsóknarferlið