Hönnunarsjóður Auroru
er þriggja ára tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að skjóta styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita hönnuðum og arkitektum fjárhagslega aðstoð. Markmið hans er að styrkja hönnuði til að koma sjálfum sér, hugmyndum sínum, vörum og verkefnum á framfæri og aðstoða við vöruþróun og markaðssetningu hérlendis og erlendis. Einnig getur sjóðurinn haft frumkvæði að sjálfstæðum verkefnum sem þjóna tilgangi hans svo sem að standa að viðurkenningum eða sýningum og vera samstarfsvettvangur hönnuða og aðila úr atvinnu- og viðskiptalífinu. Auk þessa miðlar sjóðurinn einnig þekkingu á sviði hönnunar og arkitektúrs, í samstarfi við aðra aðila í faginu, eftir því sem við á. Hönnunarsjóði Auroru er þannig ætlað að styðja við bak efnilegra hönnuða, efla grasrótarstarf í hönnun og vera vettvangur hugmynda og skapandi hugsunar í greininni. Hönnunarsjóðurinn var stofnaður 13. febrúar 2009 af Auroru Velgerðarsjóði, sem veitti til hans 25 milljónum í þrjú ár, eða alls 75 milljónum. Hönnunarsjóður Auroru á systursjóð á sviði tónlistar sem er Kraumur tónlistarsjóður. Sjóðirnir tveir deila húsnæði og hugmyndum.
meira...