Andrea Maack
Verkefni: ANDREA MAACK PARFUMS
Styrkurinn að upphæð 2.000.000 kr. er veittur til sölu- og kynningarstarfs erlendis. Andrea kynnti ilmvötn sín CRAFT, SHARP og SMART í nýstofnuðu hönnunargalleríi SPARK design Space í júní s.l. Ilmvötnin hafa hlotið góðar viðtökur og vakið mikla athygli erlendis en ilmirnir eru hannaðir uppúr myndlistarverkum Andreu. Hönnunarsjóðurinn hefur áður styrkt Andreu um 2.000.000 til vöruþróunar og frummarkaðssetningar Andrea Maack Parfums. Verkefnið er þverfaglegt og unnið í samstarfi við franska ilmvatnsfyrirtækið Apf aromes & parfums, sem hefur m.a gert ilmi fyrir Japanska fatahönnuðinn IRIR Wash, og samstarfsverkefni með Colette í París. Andrea vinnur náið með Ingibjörgu A. Jónsdóttur innanhússarkitekt og Katrínu Káradóttur klæðskera. Andrea er myndlistarmaður að mennt frá Listaháskóla Íslands 2005. Hún vinnur á mörkum myndlistar og hönnunar og leikur sér að hugtakinu “wearable art”, þ.e. list sem hægt er að klæðast eða upplifa með öðrum skynfærum. Verk Andreu hafa vakið athygli og hefur verið fjallað um þau í hinum ýmsu fjölmiðlum m.a Artnet, FRAME, Another Magazine og Wallpaper. Seinna á þessu ári koma út tvær bækur sem m.a fjalla um verk Andreu: Shapeshifters sem gefin er út af Page One Publishing í Singapore og NEXT(THE FUTURE OF FASHION) sem gefin er út af Monsa publishing í Barcelona.
www.andreamaack.com