Dagný Bjarnadóttir
Verkefni: FurniBloom
"FurniBloom" eru húsgögn úr Plexígleri, sem hugsuð eru til að rækta í jurtir eða blóm. Þessi gróður-húsgögn hafa víða vakið athygli frá því þau voru fyrst sýnd á Kjarvalsstöðum 2007 og hafa leitt til þess að hönnuðinum, Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt hefur verið boðið að hanna sýningarsvæði fyrir samnorræna sýningu landslagsarkitekta sem haldin verður í Shanghai í vor í tengslum við World Expo. Styrkinn, að upphæð 1.000.0000 kr. hlýtur Dagný til eftirfylgni þessa verkefnis erlendis.
www.landslag.is