Fyrsta úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru
fór fram 20. maí s.l. Úthlutað var 11.160.000 kr. til sjö hönnuða og 1.500.000 kr. til tveggja samstarfsverkefna sjóðsins, samtals 12.660.000 kr.

Áhersla var lögð á beinan stuðning við hönnuði á misjöfnu stigi á sínum ferli, sem eiga það þó sameiginlegt að skara fram úr á einn eða annan hátt í hönnun sinni, faglegum vinnubrögðum og sköpunarkrafti. Styrkirnir eru veittir með það fyrir augum að þeir hafi afgerandi áhrif á verkefni og/eða feril viðkomandi.

Þeir sem hlutu styrki að þessu sinni voru: Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson, Jón Björnsson, Katrín Ólína, Linda Björg Árnadóttir, Sara María Júlíusdótir og Vík Prjónsdóttir. Samstarfsverkefnin voru Hönnunarsýning Hönnunarmiðstöðvar Íslands „Íslensk hönnun 2009“ og leturgerð og útlitshönnun Gunnars Vilhjálmssonar fyrir Hönnunarsjóðinn, sem gæti öðlast framhaldslíf.

Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Verkefni: Líkkistur og duftker úr pappamassa.

Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson
Verkefni: skólínan KRON by KRONKRON.

Jón Björnsson
Verkefni: “Flower Eruption”, vasar steyptir úr
íslenskum sandi.

Katrín Ólína
Verkefni: uppbygging hönnunarfyrirtækis Katrínar
Ólínu, og efling starfsemi hennar á alþjóðlegum
vettvangi með aðsetur á Íslandi.

Linda Björg Árnadóttir
Verkefni: heimilistextíll undir vörumerkinu Scintilla.

Sara María Júlíusdóttir
Verkefnið er uppbygging framleiðslumála Nakta Apans í tengslum við mikilvæga viðskiptasamninga erlendis.

Vík Prjónsdóttir
Verkefni: vöruþróun vörulínu undir merkjum Vík Prjónsdóttur í samvinnu við prjónastofuna Víkurprjón í Vík í Mýrdal.

Samstarfsverkefni
Fyrstu samstarfsverkefni sjóðsins eru tvö og fengu úthlutað
samtals 1.500.000 kr.

Hönnunarsýningin „Íslensk hönnun 2009“
Samstarfsaðili: Hönnunarmiðstöð Íslands

Gunnar Vilhjálmsson
Leturgerð og merki Hönnunarsjóðs Auroru