Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Verkefni: Líkkistur og duftker úr pappamassa.
Styrkurinn, að upphæð 2.000.000 kr. er veittur til frumgerðasmíði auk tilrauna og rannsóknarvinnu og nýtist til að koma vörunni af hugmyndastigi, en hönnuðurinn mun fara með frumgerðir á sýninguna CODE í Kaupmannahöfn í ágúst 2009. Guðrún Lilja er einn okkar fremstu vöruhönnuða og hefur vakið mikla athygli hérlendis og erlendis frá því hún útskrifaðist frá Design Academy Eindhoven 2004. Verkefnið er þarft innlegg í umræðuna um sjálfbærni og virðingu fyrir náttúrunni en einnig nýsköpun á Íslandi og á alþjóðavísu. Vörunni er ætlað að standa fyrir sterk gildi, hugmyndafræði og einstakt hugvit. Stefnt er að fjöldaframleiðslu hér á landi fyrir innlendan og erlendan markað.
www.bility.is
www.bility.is