Hörður Lárusson
Fáninn 2 (vinnuheiti)
Fáninn 2 er vinnuheiti á bók sem fjallar um og sýnir hvernig skal umgangast íslenska fánann með virðingu og svo rétt sé. Mikið er til af reglum sem á að fara eftir og mýtum sem er óþarfi að fylgja. Bókin verður mjög sjónræn og á því að verða mjög þægileg í notkun og auka almenna þekkingu og skilning á fánanum okkar. Stefnt er að útgáfu bókarinnar þann 17. júní næstkomandi. Hörður fær nú styrk til þeirrar vinnu að upphæð 1.000.0000 kr.