Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson
Verkefni: skólínan KRON by KRONKRON.
Styrkurinn, að upphæð 1.800.000 kr er veittur til sýningahalds í Kaupmannahöfn, París og Mílanó haustið 2009. Fyrstu tvær skólínurnar eru þegar komnar í verslanir og hafa hlotið góðar viðtökur. Dreifing er hafin erlendis og mikilvægt að taka kynningar- og sölustarf föstum tökum. Sýningarnar þrjár eru valdar af kostgæfni og þar spilar reynsla og tengslanet Hugrúnar og Magna stórt hlutverk. En þau hafa verið í skóbransanum frá árinu 2000. Skórnir eru hannaðir af Hugrúnu, sem er fatahönnuður frá Studio Bercot í París, árið 2000 og Magna, sem er hárgreiðslumeistari útskrifaður 1998. Framúrskarandi hönnun og gæðaframleiðsla einnkennir KRON by KRONKRON.
www.kronbykronkron.com