Þetta nýsköpunarverkefni var unnið í sérstöku samstarfi við Hönnunarsjóð Auroru. Markmiðið var tvíþætt; að stuðla að nýsköpun á þessum vettvangi og að styðja við efnilega hönnuði. Þremur hönnuðum var boðið að hanna sérstaklega fyrir sýninguna þrívíðan hlut/húsgagn ætlað börnum. Miðað var við að hluturinn hefði notagildi og gæti farið á almennan markað í framhaldinu. Hönnuðurnir höfðu frjálsar hendur um efnistök og má sjá árangur vinnu þeirra á sýningunni. Hönnuðurnir þrír sem tóku þátt í nýsköpunarverkefninu eru:

Hanna Jónsdóttir, vöruhönnuður
Verkefni: Þéttsetrið
www.hannajonsdottir.com
Halli Civelek, grafískur hönnuður
Verkefni: Dót
www.icomefromreykjavik.com
Ragnheiður Ösp, vöruhönnuður
Verkefni: Púki og lamb
www.umemi.com

Um sýninguna, af vef Hafnarborgar:
"Í barnastærðum er sýning sem veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra hönnuða. (...) Flestir erlendu hlutirnir eru eftir vel þekkta hönnuðir og hafa ýmist haft áhrif á íslenska hönnun eða sækja í svipaðar hugmyndir og setja þannig íslensku hlutina í alþjóðlegt samhengi." (meira) Sýningin er hluti af HönnunarMarsi, en stendur til 2.maí. Sýningarstjóri er Tinna Gunnarsdóttir hönnuður.(www.tinnagunnarsdottir.is)