Hönnunarsýningin „Íslensk hönnun 2009“
Samstarfsaðili: Hönnunarmiðstöð Íslands
Sýningin „Íslensk hönnun 2009“ á Kjarvalsstöðum er á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavíkur. Sýningin er sett upp á Kjarvalsstöðum sem hluti af Listahátíð í Reykjavík í maí 2009, en er hugsuð sem farandssýning í tengslum við sendiráð Íslands erlendis til kynningar á íslenskri hönnun. Hönnunarsjóðurinn styrkir þann hluta sýningarinnar sem hlotið hefur heitið “Vaxtarsprotar” um 1.000.000.- þar sem 5 efnilegir hönnuðir eru kynntir til leiks. Þessi hluti sýningarinnar er unnin fyrir tilstuðlan Hönnunarsjóðsins með það fyrir augum að styðja við grasrót hönnunar á Íslandi. Vaxtarsprotarnir eru:
Dagur Óskarsson, Jón Björnsson, Friðgerður Guðmundsdóttir, Sóley Þórisdóttir, Þórunn Árnadóttir.
www.honnunarmidstod.is