Jón Björnsson
Verkefni: “Flower Eruption”, vasar steyptir úr íslenskum sandi.
Styrkurinn, að upphæð 860.000 kr. er veittur til vöruþróunar og endurbóta framleiðsluferlisins, þannig að hægt sé að fjöldaframleiða vöruna. Jón Björnsson er ungur upprennandi vöruhönnuður, sem útskrifaðist frá Design Academy Eindhoven 2008. Verkefnið er ferskt innlegg í umræðu dagsins í dag m.a. um umhverfisvæn efni. “Flower Eruption” vasarnir voru fyrst kynntir á Hönnunarmars 2009 í Reykjavík, þar sem þeir vöktu mikla athygli innlendra og erlendra gesta og Jóni hefur síðan þá verið boðið að sýna þá á sýningunni “Meat Packing District” í New York og á sýningunni “Islensk hönnun 2009” á Kjarvalsstöðum.
www.bjoss.com
www.bjoss.com