Katrín Ólína
Verkefni: uppbygging hönnunarfyrirtækis Katrínar Ólínu, og efling starfsemi hennar á alþjóðlegum vettvangi með aðsetur á Íslandi.
Styrkurinn að upphæð 2.500.000 kr er veittur til faglegrar uppbyggingar hönnunarfyrirtækis hennar og kynningarstarfs, hluta styrksins verður ráðstafað til faglegrar viðskiptaráðgjafar. Katrín Ólína er einn okkar þekktustu vöruhönnuða. Hún hefur að mestu leyti starfað á alþjóðavettvangi frá því hún lauk námi í iðnhönnun frá Paris ESDI 1995 og hefur fangað athygli hins alþjóðlega hönnunarheims með fjölbreytilegum verkum sem framleidd hafa verið og sýnd víða auk þess að vinna fyrir alþjóðleg stórfyrirtæki.
www.katrin-olina.com