Katrín Ólína
Verkefni: framleiðsla sérverkefna tengdum myndheimi hennar
Styrkurinn að upphæð 1.200.000 kr. er veittur til framleiðslu sérverkefna Katrínar Ólínu tengdum myndheimi hennar. Þessi verkefni eru m.a. afsprengi þeirrar vinnu sem fram hefur farið frá fyrri styrkveitingu 2009. Sá styrkur, að upphæð 2.500.000 kr. var veittur til faglegrar uppbyggingar hönnunarfyrirtækis Katrínar Ólínu, faglegrar viðskiptaráðgjafar og kynningarstarfs. Katrín Ólína er iðnhönnuður frá E.S.D.I. í París 1995. Hún hóf ferilinn hjá Philippe Stark og Ross Lovegrove. Katrín Ólína hefur að mestu leyti starfað á alþjóðavettvangi og hefur fangað athygli hins alþjóðlega hönnunarheims. Hún hefur unnið sem grafískur listamaður og myndskreytir í vöruhönnun, tísku, innanhússhönnun, á prentað efni og hreyfimyndagerð. Verk hennar hafa birst á mörgum virtum söfnum og sýningum víða um heim, í tímaritum og bókum um samtímahönnun auk þess sem hún hefur unnið fyrir alþjóðleg stórfyrirtæki.
www.katrin-olina.com