Kristrún Thors
Verkefni: styrkur til starfsreynslu
Kristrún Thors er vöruhönnuður frá Eindhoven og hefur hafið starfsreynslutímabil sitt hjá Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur, StudioBility. Í Október s.l. kynnti Hönnunarsjóðurinn nýja tegund styrkja sem eru hugsaðir fyrir nýlega útskrifaða hönnuði og arkitekta til þess að fjölga möguleikum þessa fólks á vinnumarkaði og efla tengslanet í greininni. Upphæð styrkjarins er 540.000 kr. og er ætlað að koma til móts við launakostnað til 3ja mánaða.(nánar um þessa styrki)