Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson
Verkefni: Kron by KRONKRON
Styrkurinn að upphæð 1.800.000 kr. er veittur til sýningahalds erlendis. Hönnunarsjóðurinn heldur áfram stuðningi sínum við Hugrúnu og Magna, en þetta er í þriðja sinn sem þau hljóta styrk úr sjóðnum. Áður hefur 3.600.000 kr. verið úthlutað til þáttöku Kron by KRONKRON á sýningum erlendis. Kron by KRONKRON hafa vakið mikla athygli bæði hérlendis og erlendis og eru nú seldir í hátt í 40 löndum og fengið mikla umfjöllun í erlendum fjölmiðlum. KronbyKronKron línan hefur nú stækkað og inniheldur nú einnig föt og fylgihluti, sem allt er hannað af þeim Hugrúnu, sem er fatahönnuður frá Studio Bercot í París, árið 2000 og Magna, sem er hárgreiðslumeistari útskrifaður 1998. Þau ákvaðu upphaflega að hanna skólínu útfrá þeim sjálfum þar sem áhersla er lögð á sköpunargleðina og dálæti þeirra á litum. Þau leggja mikið uppúr gæðum í efnum og framleiðslu. Skórnir eru handunnir á Spáni, af handverksmönnum sem vinna með aldagamlar hefðir í skógerð og með það orðspor að vera fremstir í flokki í spænskum skóiðnaði.
www.kronbykronkron.com