Laufey Jónsdóttir
Verkefni: fatalína fyrir Glófa. Um er að ræða fyrsta styrkinn sem veittur er til að fjölga tækifærum fyrir nýútskrifaða hönnuði á vinnumarkaði.
Verkefnið er samstarfsverkefni Laufeyjar og Glófa sem hófst í gegnum verkefni Hönnunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs "Hönnun til útflutnings". Laufey hefur hannað nýja línu fyrir Glófa sem bera mun sitt eigið nafn en vera kennt við Laufeyju. Styrkurinn, að upphæð 1.000.000 kr. er veittur til þess að leggja lokahönd á línuna og fylgja henni úr hlaði með kynningum innanlands og utan með Glófa. Tímarammi verkefnis er 6 mánuðir.
