Laufey Jónsdóttir
Verkefni: styrkur til starfsreynslu
Laufey Jónsdóttir, fatahönnuður hefur unnið að hönnun fatalínunnar Blik hjá Glófa ehf. en samstarf þeirra hófst í gegnum verkefnið “Hönnun í útflutning” á vegum Hönnunarmiðstövar Íslands og Útflutningsráðs árið 2009. Hún fær nú seinni hluta styrks sem úthlutað var í Október s.l. þegar Hönnunarsjóðurinn kynnti nýja tegund styrkja sem eru hugsaðir fyrir nýlega útskrifaða hönnuði og arkitekta til þess að fjölga möguleikum þessa fólks á vinnumarkaði og efla tengslanet í greininni. Upphæð styrkjarins er 540.000 kr. og er ætlað að koma til móts við launakostnað til 3ja mánaða.(nánar um þessa styrki)
www.facebook.com/pages/Blik
www.facebook.com/pages/Blik