Gunnar Vilhjálmsson
Leturgerð og merki hönnunarsjóðs Auroru.
Styrkurinn að upphæð 500.000 kr er veittur til leturgerðar. Um er að ræða hönnun leturs fyrir Hönnunarsjóðinn og útfærslu í samræmi við það á heimasíðu sjóðsins ofl. Hugmyndir um „framhaldslíf“ letursins eða frekari útfærslur eru í skoðun. Letrið er endurgerð á letrinu Golden Type, sem William Morris teiknaði fyrir forlagið sitt Kelmscott Press. Letrið teiknaði Morris eftir stafagerð sem Nicolas Jenson gerði í Feneyjum 1475, Laertis, en það hefur verið fyrirmynd prentstafa í Latneska/Roman stafrófinu allt til dagsins í dag. Morris notaði það í bókinni Sidonia the Sorceress sem hann gaf íslensku þjóðinni (Landsbókasafninu) í október 1894, en sú bók er hugsuð sem nokkurs konar „design manual“ fyrir identity Hönnnunarsjóðs Auroru, þar sem horft verður til leturs, leturmeðferðar, framsetningu og litavals. Vinnuheiti letursins er GOLDEN AURORA.
www.gunnarvilhjalmsson.net