Linda Björg Árnadóttir
Verkefni: heimilistextíll undir vörumerkinu Scintilla.
Styrkurinn, að upphæð 1.000.000.- er veittur til sýningahalds hjá Martine Sitbon í París í september nk. og kynningu í tengslum við það. Linda Björg hefur unnið að þróun Scintilla vörumerkisins í nokkurn tíma og stefnir nú á að kynna vörulínuna í Gallery Turpentine í Reykjavík í Júní og hjá Martine Sitbon í París í september. Linda Björg er menntaður fatahönnuður frá Studio Bercot, París og er fagstjóri í fatahönnun við LHÍ. Hún hefur starfað með fjölmörgum fyrirtækjum á alþjóðlegum vettvangi og hefur mikla reynslu í faginu.
www.lindabjorgarnadottir.com