Guðmundur Hallgrímsson / Mundi
Verkefni: MUNDI
Styrkurinn að upphæð 1.000.000 kr. er veittur til þáttöku, undirbúnings og eftirfylgni á Rendez-Vous, Paris Fashion Week, en Mundi kynnti nýlega sjöundu fatalínu sína þar. Mundi hóf nám við Listaháskóla Íslands, 18 ára að aldri, en stofnaði sitt eigið fatamerki ári síðar. Hann hefur vakið athygli undanfarin misseri fyrir sköpunargleði og frumleika, sem hönnuður og listamaður, en Mundi er virkur þáttakandi í listahópnum MoMS sem tekið hefur þátt í fjölda listasýninga og verkefna um allan heim.
www.mundivondi.net