Næsta úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru fer fram í apríl 2012. Umsóknarfrestur er til og með 21.febrúar 2012. Tekið verður á móti umsóknum á skrifstofu sjóðsins í Vonarstræti 4b til kl 17:00 þann dag. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti (póststimpill gildir) en athugið að óskað er eftir rafrænu eintaki og útprentuðu.
(meira um umsóknir)

Hönnunarsjóður Auroru er opinn öllum hönnuðum og arkitektum. Ekki er notast við hefðbundin umsóknareyðublöð, en umsóknir skulu innihalda yfirlit yfir verkefnið, markmið þess og framtíðarsýn og grófa fjárhagsáætlun. Verkefnið skal auk þess hafa skilgreint upphaf og endi. Ekki er veittur styrkur til fjármögnunar á framleiðslu.

Hönnunarsjóðurinn hefur leitast við að styrkja framúrskarandi hönnuði með heilsteypta viðskiptahugmynd og skýra framtíðarsýn og hefur mótað sér þá stefnu að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur sem viðkomandi hönnuður stefnir að megi nást. Þannig hafa nokkrir aðilar ítrekað hlotið styrki úr sjóðnum.

Stjórn sjóðsins tekur ákvarðanir um allar úthlutanir með framkvæmdastjóra, en sérstakt fagráð fólks úr hönnunargeiranum og viðskiptalífinu er stjórn og framkvæmdastjóra til ráðgjafar eftir því sem þurfa þykir.

Framkvæmdastjóri veitir góðfúslega allar frekari upplýsingar og aðstoð við umsóknir. Allar umsóknir eru geymdar, en eldri umsóknir óskast endurnýjaðar ef ætlunin er að sækja um aftur. Mælst er til þess að umsóknir séu sendar bæði rafrænt og útprentaðar ásamt sýnishornum eftir því sem tilefni er til í pósti eða koma með á skrifstofu Hönnunarsjóðsins í Vonarstræti 4b:

e-mail
info@honnunarsjodur.is

Póstfang
Hönnunarsjóður Auroru
Pósthólf 590
121 Reykjavík
s. 7721200