Sara María Júlíusdóttir
Verkefnið er uppbygging framleiðslumála Nakta Apans í tengslum við mikilvæga viðskiptasamninga erlendis.
Styrkurinn, að upphæð 2.000.000 kr er veittur til að efla og byggja upp framleiðslu Söru Maríu undir merkjum “Nakta Apans”. Hluta styrksins verður ráðstafað til ráðgjafar fagaðila í viðskiptum og framleiðslu. Sara María stundaði nám við VMA og í FB, en frá 2005 hefur hún rekið verslunina “Nakta Apann”, þar sem hún hefur hannað, framleitt og selt fatnað. Hún hefur litið á “Nakta Apann” sem opna vinnustofu í bland við verslunarrekstur og verið í samstarfi við margt hæfileikaríkt fólk úr fatahönnunargeiranum sem og tónlistargeiranum. Í framhaldi af samstarfi hennar við Iceland Airwaves m.a. hefur hönnun hennar vakið áhuga erlendra aðila um samstarf.
www.dontbenaked.com