Stefnumót bænda og hönnuða
Verkefni: matarhönnun.
Stefnumót bænda og hönnuða er verkefni innan Listaháskóla Íslands. Þegar námskeiðinu líkur á vorin, ræður Listaháskólinn 3-4 nýútskrifaða hönnuði til að fullvinna vörur sem komið hafa út úr námskeiðinu undir handleiðslu reyndar hönnuða. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu og þverfaglega vinnu með sérfræðingum t.d. frá Matís. Hönnunarsjóðurinn mun styrkja einn þessara nýútskrifuðu hönnuða í tvö tímabil, samtals um 1.000.000 kr. Tímarammi verkefnis er áætlaður tvö ár. Styrkurinn er hugsaður sem hluti af verkefni Hönnunarsjóðsins til að fjölga tækifærum fyrir nýútskrifaða hönnuði á vinnumarkaði.