úthlutun 17.nóvember 2011
18 November 2011
Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði 6.000.000 kr. til framúrskarandi hönnuða og verkefna þeirra
fimmtudaginn 17.nóvember 2011
Alls hefur verið úthlutað úr sjóðnum rúmlega 17.500.000 króna á þessu ári. Af þessu tilefni var jafnframt tilkynnt um áframhaldandi starfsemi Hönnunarsjóðs Auroru eftir að þriggja ára tilraunatímabili hans lýkur nú í lok þessa árs en stofnandi sjóðsins, Aurora Velgerðarsjóður hefur ákveðið að veita sjóðnum brautargengi í önnur þrjú ár.
(ítarefni um úthlutunina og hönnuðina)
Reynslunni ríkari11 November 2011
Hönnunarsjóður Auroru ásamt nokkrum styrkþegum hans miðla af reynslu sinni á tímamótum í starfsemi sjóðsins í fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar, Listasafns Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands, fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20 í Hafnarhúsi.
Aurora Velgerðarsjóður, stofnandi Hönnunarsjóðsins hefur veitt honum brautargengi á ný til þriggja ára. Á þessum tímamótum er við hæfi að staldra við, líta um öxl og miðla af reynslu sjóðsins og þeirra sem hlotið hafa styrki.
Fram koma:
Andrea Maack / EAU DE PARFUM Anton Kaldal, Gunnar Þ.Vilhjálmson og Steinar Farestveit / saga og
þróun bókstafsins ð, Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson / KRON by KRONKRON, Hafsteinn Júlíusson / HAF, Sigríður Sigurjónsdóttir / SPARK, Design Space, Hlín Helga Guðlaugsdóttir / Hönnunarsjóður Auroru
Í hádeginu, þennan sama dag, fimmtudaginn 17.nóvember fer fram seinni úthlutun ársins 2011, en sú sjöunda frá því hann var stofnaður þann 13. febrúar 2009 (meira)
Úthlutun 23.mars 2011 úr Hönnunarsjóði Auroru23 March 2011
Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði í dag 11.580.000 kr. til hönnuða og arkitekta til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs.
Sjóðurinn hefur leitast við að styrkja framúrskarandi hönnuði með heilsteypta viðskiptahugmynd og skýra framtíðarsýn. Að þessu sinni bárust 80 umsóknir af öllum sviðum hönnunar, sem er mesti fjöldi umsókna sem sjóðnum hefur borist hingað til. Samhliða auknum fjölda umsókna eru einnig aukin gæði þeirra merkjanleg.
Að þessu sinni fá þrír aðilar framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna, sem er í takt við þá stefnu Hönnunarsjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að. Þetta eru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar. Öll eiga þessi verkefni sameiginlegt að ötullega hefur verið unnið í þeim frá fyrri styrkveitingum.
Hönnunarsjóðurinn styrkir í fyrsta skipti Anton Kaldal, Gunnar Vilhjálmsson og Steinar Farestveit með rannsóknarverkefni sem kafar djúpt í uppruna, sögu, og þróun bókstafsins „ð“, sem er þýðingarmikill hluti af þjóðararfi Íslendinga. Rannsóknin verður tekin saman með útgáfu bókar. Arkitektastofan KRADS með verkefni sitt PLAYTIME, sem er farandvinnustofa ætluð nemum í arkitektúr, þróuð í samvinnu við danska leikfangaframleiðandann LEGO. Sruli Recht fatahönnuður með nýja herrafatalínu sína og Auður Ösp Guðmundsdóttir, Embla Vigfúsdóttir Katarina Lötzsch og Robert Peterssen með matarhönnunarverkefnið “ Pantið áhrifin” en það verkefni fékk Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands á dögunum.
(meira um hönnuðina)
Auk þessa tekur Hönnunarsjóður Auroru áfram þátt í uppbyggingu HönnunarMars Hönnunarmiðstöðvar Íslands og styrkir í því tilliti gerð myndbanda sem heimild um hátíðina og gerir Hönnunarmiðstöð kleift að bjóða hingað erlendum blaðamönnum.
Hönnunarsjóður Auroru hefur styrkt hönnuði til starfsnáms síðustu ár en þetta er í fyrsta skipti sem styrkirnir eru veittir til starfsnáms erlendis. Styrkina hljóta Birna Geirfinnsdóttir sem fær styrk til starfsnáms hjá Fraser Muggeridge Studio í London, sem er í eigu Fraser Muggeridge, Sarah Newitt & Stephen Barrett og Björgvin Friðgeirsson til að starfa hjá “Soup” í Kaliforniu, sem er í eigu John Bielenberg margverðlaunaðs grafísks hönnuðar.
Um er að ræða fyrstu úthlutun úr sjóðnum á þessu ári, en þá sjöttu frá því Hönnunarsjóðurinn hóf starfsemi sína í byrjun árs 2009. Aftur verður úthlutað úr sjóðnum á haustmánuðum 2011.
Árangursmat á starfsemi Hönnunarsjóðs Auroru18 March 2011
Rannsóknarmiðstöð skapandi greina hjá Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands kynnti á dögunum árangursmat á starfsemi Hönnunarsjóðs Auroru og Kraums tónlistarsjóðs. Höfundar skýrslunnar eru þau Margrét Sigrún Sigurðardóttir og Tómas Viktor Young.
Markmið með gerð árangursmatsins var fyrst og fremst að aðstoða stjórnendur sjóðanna til að meta það starf sem á sér stað innan sjóðanna, hvaða áhrif það hefur á frama styrkþega og einnig hönnunar- og tónlistarsamfélagið í víðari skilningi. Einnig var árangursmatið hugsað sem lærdómur um það hvernig best er að standa að styrkveitingum, hvaða form gefur bestan árangur, hvaða aðferðarfræði hentar best þeim sem sækja um styrki og hvaða ásýnd svona sjóðir hafi gagnvart umsækjendum og samstarfsaðilum.
(umfjöllun á menningarpressunni)
Næsta úthlutun : umsóknarfrestur rennur út 15.feb14 January 2011
Úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru 21.okt.201002 November 2010
Þriðja úthlutun ársins 2010 úr Hönnunarsjóði Auroru fór fram 21.október s.l. þegar 6.000.000 króna var úthlutað til fjögurra hönnuða sem vinna að þróun og fekari framgangi verkefna sinna. Sjóðurinn hefur leitast við að styrkja framúrskarandi hönnuði með heilsteypta viðskiptahugmynd og skýra framtíðarsýn. Hönnunarsjóðurinn hefur mótað sér þá stefnu að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur sem viðkomandi hönnuður stefnir að megi nást. Þannig fá þrír aðilar framhaldsstyrki að þessu sinni til frekari eflingar verkefna sinna. Þetta eru þau Andrea Maack með ANDREA MAACK PARFUMS, Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson með KRONbyKRONKRON og Katrín Ólína til framleiðslu sérverkefna í tengslum við myndheim hennar. Öll eiga þessi verkefni sameiginlegt að ötullega hefur verið unnið í þeim frá fyrri styrkveitingum. Guðmundur Hallgrímsson, MUNDI hlýtur auk þess styrk í fyrsta skipti úr sjóðnum. (meira)