hefur að markmiði að skjóta styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita hönnuðum og arkitektum fjárhagslega aðstoð. Markmið hans er að styrkja hönnuði til að koma sjálfum sér, hugmyndum sínum, vörum og verkefnum á framfæri og aðstoða við vöruþróun og markaðssetningu hérlendis og erlendis. Einnig getur sjóðurinn haft frumkvæði að sjálfstæðum verkefnum sem þjóna tilgangi hans svo sem að standa að viðurkenningum eða sýningum og vera samstarfsvettvangur hönnuða og aðila úr atvinnu- og viðskiptalífinu. Auk þessa miðlar sjóðurinn þekkingu á sviði hönnunar og arkitektúrs, í samstarfi við aðra aðila í faginu, eftir því sem við á. Hönnunarsjóði Auroru er þannig ætlað að styðja við bak efnilegra hönnuða, efla grasrótarstarf í hönnun og vera vettvangur hugmynda og skapandi hugsunar í greininni. Hönnunarsjóðurinn var stofnaður 13. febrúar 2009, sem tilraunaverkefni til þriggja ára af
Auroru Velgerðarsjóði, sem veitti til hans 25 milljónum í þrjú ár, eða alls 75 milljónum. Í lok þessa tímabils var ákveðið að halda áfram með sjóðinn og veita aftur til hans 75 milljónum til þriggja ára, eða til loka ársins 2015.
Rökstuðningur stjórnar Auroru við stofnun Hönnunarsjóðsins:
Þörf er á sérstökum hönnunarsjóði á Íslandi til að styðja við bak efnilegra hönnuða en ekki síður til að efla grasrótarstarf í hönnun og vera vettvangur hugmynda og skapandi hugsunar í greininni. Stjórn Auroru vonar að nýi sjóðurinn stuðli að því að íslensk hönnun vaxi og dafni og verði ein af stoðunum sem skotið verði undir atvinnulífið við endurreisn þess. Reyndar er engu líkara en að efnahagshrunið hafi beinlínis leyst úr læðingi frjóa hugsun og sköpunarkraft Íslendinga, meðal annars í hönnunarsamfélaginu. Hönnuðir sjá fjölda nýrra tækifæra til að leggja sitt af mörkum í endurreisnarstarfinu. Hönnunarsjóður Auroru getur orðið sá vettvangur sem nauðsynlegur er til að hrinda hugmyndum í framkvæmd í samvinnu hönnuða og atvinnulífs.
Stjórn Hönnunarsjóðs Auroru
•Jóhannes Þórðarsson, arkitekt, fyrrverandi deildarforseti hönnunar-og arkitektúrdeildar LHÍ, formaður stjórnar.
•Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður, frkv.stj. Hönnunarmiðstöðvar Íslands, meðstjórnandi.
•Hlín Helga Guðlaugsdóttir, vöruhönnuður, meðstjórnandi.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Margrét Ólafsdóttir, húsgagna- og innanhússarkitekt
Fagráð Hönnunarsjóðs Auroru
•Eyþór Ívar Jónsson, dósent við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn.
•Eyjólfur Pálsson, húsgagnahönnuður og kaupmaður í Epal.
•Sigurður Þorsteinsson, iðnhönnuður og eigandi Design Group Italia.
•Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt, Basalt arkitektar.
•Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands.
•Fiona Cribben, fatahönnuður.
Hönnunarsjóður Auroru á systursjóð á sviði tónlistar sem er Kraumur tónlistarsjóður. Sjóðirnir tveir deila húsnæði og hugmyndum.
Hönnunarsjóður Auroru