Fyrri úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru fór fram þann 31.maí s.l
Þeir sem að þessu sinni fengu styrk eru:
Ostwald Helgason (2 milljónir)
Ingvar Helgason og Susanne Ostwald, fatahönnuðir fyrir þátttöku í tískuvikunni í New York í september 2012.
EYGLO (1.8 milljón)
Eygló Margrét Lárusdóttir, fatahönnuður fyrir áframhaldandi vöruþróun og markaðssókn erlendis.
Barnafatalínan As we grow (1.8 milljón)
María Ólafsdóttir, Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir og Gréta Hlöðversdóttir fyrir kynningu og markaðssetningu erlendis.
Vöruhönnuðurinn Brynjar Sigurðarson með Húsgögn (1.5 milljón)
Brynjar Sigurðarson, vöruhönnuður fyrir frekari vöruþróun m.a. vegna sýningar í Galleri Kreo, París.
Krads arkitektar vinnustofan PLAYTIME (1.2 milljón)
Til frekari þróunar á vinnustofu fyrir arkitektanema, hérlendis og erlendis, í samstarfi við hinn heimsfræga arkitekt Viny Maas, LEGO ofl. Vinnustofurnar virkja sköpunargleði, skipulagshæfni og rýmisgreind þátttakenda.
Valgerður Pétursdóttir, starfsnám hjá AUGE (500 þúsund)
Starfsnám í listrænni stjórnun og grafískri hönnun hja AUGE, Ítalíu.
HönnunarMars – erlent kynningarefni og blogg (1.2 milljón)
Hönnunarsjóðurinn heldur áfram samstarfi við Hönnunarmiðstöð vegna uppbyggingar HönnunarMars hátíðarinnar og kynningar á íslenskri hönnun erlendis.
SEINNI ÚTHLUTUN ÚR HÖNNUNARSJÓÐI AURORU FÓR FRAM ÞANN 27. NÓVEMBER S.L.
Sex og hálfri milljón króna úthlutað til hönnuða og arkitekta.
27. nóvember var úthlutað 6,5 milljónum til hönnuða og hönnunarverkefna.
Hönnunarsjóður Auroru hefur þá úthlutað alls 17 milljónum til hönnuða og hönnunarverkefna á árinu 2012.
Hjá sjóðnum er lögð áhersla á að styðja verkefni þar sem hönnuðir hafa skýra sýn og markmið. Í þessari úthlutun má greina áherslu hönnuða á mikilvægi rannsóknarvinnu við undirbúning verkefna sinna. Það er fulltrúum sjóðsins sönn ánægja að geta veitt hönnuðum næði til að kafa á aukið dýpi í rannsóknarvinnu sinni sem er einn mikilvægasti þáttur hönnunarferlisins og forsenda góðrar útkomu.
Þeir hönnuðir og hönnunarverkefni sem að þessu sinni hljóta styrk eru:
Fathönnunarverkefnið Ostwald Helgason (1.5 milljón)
Ingvar Helgason og Susanne Ostwald fatahönnuðir, fyrir frekari þróun og markaðsstarf fyrir fatalinun sína og þátttöku í tískuvikunni í New York í maí 2013.
Spark Design Space (1.2 milljón)
Fyrir gerð kynningarefnis um hönnun og hönnuði sem sýnt hafa í galleríinu.
Vöruhönnunarverkefnið Textasíða (1.2 milljón)
Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdótir vöru- og grafískir hönnuðir, fyrir frekari vöruþróun og undirbúning verkefnisins Textasíður fyrir fjöldaframleiðslu.
Rannsóknar og hönnunarverkefni byggt á ævistarfi Gísla B. Björnssonar (1.2 milljón)
Ármann Agnarsson grafískur hönnuður, fyrir rannsóknar og hönnunarverkefni byggt á ævistarfi grafíska hönnuðarins Gísla B. Björnssonar í tengslum við uppsetningu sýningar sem nú stendur yfir í Hönnunarsafni Íslands.
Arkitektúr, bókverk (750 þúsund)
Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Magnúsdóttir sagnfræðingur, fyrir rannsóknar- og hönnunarverkefni vegna undirbúnings að gerð bókar um sögu hönnunar og staðarvals margra helstu bygginga í Reykjavíkurborg.
Guðrún Eysteinsdóttir textílhönnuður (500 þúsund)
Styrkur til starfsnáms hjá Center for Advanced Textiles (CAT) í Glasgow, Skotlandi.
Hildigunnur Sigurðardóttir fatahönnuður (500 þúsund)
Styrkur til starfsnáms hjá fatahönnuðinum Roland Mouret í London.
Um er að ræða aðra úthlutun úr sjóðnum á þessu ári, en þá níundu frá því Hönnunarsjóðurinn hóf starfsemi sína í byrjun árs 2009. Aftur verður úthlutað úr sjóðnum á vormánuðum 2013.