SPARK Design Space er hugsað sem farvegur fyrir framúrskarandi íslensk hönnunarverkefni. Sérstök áhersla er lögð á að sýna og kynna verkefni þar sem hönnuðir starfa náið með öðrum starfsstéttum. Sem dæmi má nefna samstarf myndlistarmannsins Andreu Maack við innanhúsarkitekt, fatahönnuð og franska ilmvatnsgerðafyrirtækið DP & CO, samstarf Víkur Prjónsdóttur við prjónaverksmiðjuna Víkurprjón og samstarf hönnuðarins Katrínar Ólínu við teppaframleiðandan Ege og konunglega dúskafyrirtækið Århus Possementfabrik A/S í Danmörku. Á HönnunarMars 2012 mun Spark kynna verkefnið Stefnumót hönnuða og bænda í heild sinni en öll þessi verkefni sýna glöggt fram á mátt samstarfsins. Árlega eru haldnar fimm til sex hönnunarsýningar í Sparki auk minni viðburða sem fléttast inn í dagskrána. Spark var stofnað árið 2010 af Sigríði Sigurjónsdóttur prófessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands.
Styrkurinn frá Hönnunarsjóði Auroru, að upphæð 1.500.000 kr. er veittur til sýningahalds í galleríinu og er þetta í annað sinn sem SPARK hlýtur styrk úr sjóðnum.
Herrafatalína Sruli verður sýnd í Some Things gallery og á tískusýningu í París Men's Fashion Week í janúar 2012. Sruli vinnur náið með ólíku fagfólki, ekki hvað síst við þróun framleiðsluaðferða og vinnslu vannýttra íslenskra hráefna s.s. hestaskinn, lambaskinn, fiskiroð og hreindýraskinn, fugla og prjónaða ull. Nýjasta hráefni í hönnun hans er kóngulóarsilki, og standa nú yfir tilraunir með það. Að öðru leyti fer öll framleiðsla fram á Íslandi úr íslensku hráefni. Fyrri línur hans “When Gravity Fails” og "Cast by Shadows" hafa hlotið góðar viðtökur og inniheldur viðskiptavinahópur hans Karl Lagerfeld, Lenny Kravitz, Rufus Wainwright, Kanye West ofl. Sruli hefur búið og starfað á Íslandi frá 2005.
Styrkurinn frá Hönnunarsjóði Auroru, að upphæð 1.500.000 kr. er veittur til þróunar- og hönnunarvinnu línunnar og undirbúnings fyrir París Men's Fashion Week og er þetta í annað sinn sem Sruli hlýtur styrk úr sjóðnum.
www.srulirecht.com
Hugmyndin að baki DIG-Equality byggir á þeirri hugsjón að hönnun sé afl til samfélagslegra breytinga. Röksemdin fyrir því er sú að hinn manngerði heimur er hannaður. Okkar daglegi veruleiki er búinn til, allt frá smæstu hlutum upp í stórar byggingar og skipulög. Við lifum ekki aðeins í manngerðum heimi heldur lifum við líka í vissri hugmyndafræði sem endurspeglast í öllu okkar umhverfi. Partur af þessari hugmyndafræði eru hugmyndirnar um kynin. Þessar hugmyndir hafa áhrif á það hvernig veruleikinn er hannaður. Staðlaðar ímyndir viðhalda stöðnuðum hugmyndum. Jafnréttisvandi heimsins er enn stór og því er mikilvægt að í svo áhrifamiklu fagi eins og hönnun fari fram bæði gagnrýnin og skapandi vinna að breytingum og framþróun. Jafnrétti kynjanna er eitt af grundvallarverkefnum hvers samfélags og skiptir lykilmáli hvað varðar velferð, hamingju og heilbrigði.
Áhugavert dæmi um hönnun og jafnrétti er hönnun reiðhjólsins undir lok 19. aldar og áhrif þess á ferðafrelsi kvenna og fatatísku. Kvenréttindakonan Sunsan B. Anthony hélt því fram á þeim tíma að hjólið hefði lagt meira til jafnréttis en nokkuð annað í heiminum. Nýleg frétt er varðar hönnun og kyn fjallaði um að konur slasist í ríkari mæli í bílslysum þrátt fyrir notkun bílbeltis og örsökin talin sú að bílbeltin eru hönnuð með karlmannslíkama í huga.
Styrkurinn frá Hönnunarsjóði Auroru, að upphæð 2.000.000 kr. er veittur til hönnunar- og þróunarvinnu þessa þverfaglega verkefnis.





