10 milljónum úthlutað til íslenskra hönnuða
1.október 2009 úthlutaði Hönnunarsjóður Auroru 10 milljónum til átta íslenskra hönnuða og verkefna.

Áhersla var sem fyrr lögð á beinan stuðning við hönnuði, sem eiga það sameiginlegt að skara fram úr á einn eða annan hátt í hönnun sinni, faglegum vinnubrögðum og sköpunarkrafti. Auk þess voru kynnt tvö ný verkefni Hönnunarsjóðsins sem er ætlað að efla faglegar stoðir hönnunar á Íslandi og fjölga tækifærum fyrir nýútskrifaða hönnuði á vinnumarkaðnum. Annarsvegar með ráðgjöf fyrir styrkþega sjóðsins og hinsvegar með því að bjóða upp á styrki fyrir nýútskrifaða hönnuði sem hafa vilyrði fyrir starfsnámi hjá starfandi hönnuði eða arkitekt eða vilyrði fyrir samstarfi við fyrirtæki. Þessir styrkir verða auglýstir sérstaklega á næstunni, en 2 slíkum styrkjum var úthlutað 1.október.

Þeir sem hlutu styrki að þessu sinni voru Andrea Maack, Bóas Kristjánsson, Charlie Strand, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Snæbjörn Stefánsson, Sonja Bent, Laufey Jónsdóttir og verkefnið "Stefnumót bænda og hönnuða". nánar

Um er að ræða seinni úthlutun þessa fyrsta starfsárs Hönnunarsjóðs Auroru, en 20. maí s.l. var úthlutað 12,5 milljón til níu íslenskra hönnuða til verkefna af ýmsum toga. Hönnunarsjóðurinn hefur því úthlutað samtals 22,5 milljón til sautján hönnuða og verkefna á Íslandi á árinu.

51_img0101.jpg