Vík Prjónsdóttir
Verkefni: vöruþróun vörulínu undir merkjum Vík Prjónsdóttur í samvinnu við prjónastofuna Víkurprjón í Vík í Mýrdal.
Styrkurinn, að upphæð 1.000.000 kr er veittur til vöruþróunar vörulínunnar, en markmiðið er að bæta 3-5 vörum í núverandi vörulínu, vegna eftirspurnar og áhuga markaðarins. Hluta styrksins verður ráðstafað til ráðgjafar fagaðila í framleiðslumálum. Verkefnið er samstarfsverkefni hönnuðanna Brynhildar Pálsdóttur, Egils Kalevi Karlssonar, Guðfinnu Mjallar Magnúsdóttur, Hrafnkels Birgissonar og Þuríðar Rósar Sigurþórsdóttur. Þau hafa öll skapað sér sess sem sjálfstætt starfandi hönnuðir á sviði vöruhönnunar síðustu ár. Verkefnið Vík Prjónsdóttir hófst 2005 og hefur frá upphafi vakið mikla athygli hönnunarpressunnar. Nú er ætlunin að taka markaðssetningu vörulínunnar föstum tökum í framhaldi af vöruþróunarvinnunni fyrir tilstillan sjóðsins og í samstarfi við Víkurprjón.
www.vikprjonsdottir.com
www.vikprjonsdottir.com