Verkefni: Saga og þróun bókstafsins „ð“
Styrkurinn að upphæð 2.500.000 kr. er veittur til hönnunar- og rannsóknarvinnu. Um er að ræða rannsóknarverkefni sem kafar djúpt í uppruna, sögu, og þróun bókstafsins „ð“. Á síðustu árum höfum við eignast nýja kynslóð af grafískum hönnuðum sem farið hefur í framhaldsnám og stundað rannsóknir í grafískri hönnun. Það gjörbreytir greininni sem starfsgrein þegar umræða, rannsóknir og skrif fara að skila árangri í verki eins og þessu. Þetta verk skilar skilningi á sérstöðu tákna okkar í bók og ritmáli og útlitshönnun sem því fylgir. Rannsóknin verður tekin saman og gerð aðgengileg með útgáfu bókar sem mun m.a. snerta á leturfræði, formfræði, sögu, og notagildi, sem og þætti bókstafsins í sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar í gegnum tíðina. Með verkefninu verður þróun „ð“ sett í sögulegt samhengi og ljósi varpað á lítt þekktar staðreyndir í merkilegri sögu bókstafsins, sem er þýðingarmikill hluti af þjóðararfi Íslendinga.
www.gunnarvilhjalmsson.net
www.antonkaldal.com
www.steifar.com
Auður Ösp Guðmundsdóttir, Embla Vigfúsdóttir, Robert Petersen og Katharina Löetzch
Verkefni: Pantið áhrifin
Styrkurinn að upphæð 1.500.000 kr. er veittur til þróunar- og hönnunarvinnu verkefnisins. Aðstandendur “Pantið áhrifin” eru alþjóðlegur hópur vöruhönnuða frá þremur löndum; Íslandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Hugmyndin kviknaði í áfanganum “Stefnumót hönnuða og bænda” sem kennt var við Listaháskóla Íslands. “Pantið áhrifin” er hugmyndafræðilegur og færanlegur veitingastaður þar sem réttirnir eru pantaðir út frá áhrifum þeirra á líkamann en ekki út frá innihaldi. Hugmyndafræðin snýst um tilraunagleði, rekjanleika og nýsköpun. “Pantið áhrifin” er nýtt innlegg í skyndibitamenningu landsins og til þess fallinn að valda samfélagslegri hugarfarsbreytingu um heilnæmi og grænmeti sem auðlind. Pöntuninni sjálfri er ætlað að vera eftirminnileg, spennandi og fræðandi upplifun sem vekur athygli á þeim áhrifamætti sem í fæðunni býr, því matur seður ekki aðeins hungur heldur getur bæði verið fyrirbyggjandi fyrir sjúkdóma og græðandi. Hönnuðirnir eru í samstarfi við matreiðslumann Á næstu grösum, Trésmíðaverkstæði Guðmundar á Flúðum, Seglagerðinni Ægi, Málmverkstæði Stálgæði, Eymund bónda á Vallanesi og einyrkjann Magnús sem hefur verið að þróa hrökkbrauð úr íslensku byggi frá Vallanesi.
Sruli Recht
Verkefni: Herrafatalína
Styrkurinn að upphæð 1.500.000 kr. er veittur til þróunar- og hönnunarvinnu á nýrri herrafatalínu Sruli Recht. Þessi lína er eftirfari línunnar “When Gravity Fails”, sem var fyrsta heilstæða lína hans. Framleiðslan fer öll fram á Íslandi úr íslensku hráefni, en Sruli notar hestaskinn, lambaskinn, fiskiroð og hreindýraskinn, fugla og prjónaða ull. Skólína Sruli “...I have walked” fékk mikla athygli í erlendum fjölmiðlum s.s. ítalska Vogue, Time Magazine, The New York Times og Dazed and Confused. Sruli verður með sýningu á HönnunarMarsi 2011 í Hafnarhúsinu í París seinna á árinu. Sruli hefur búið og starfað á Íslandi frá 2005.
www.srulirecht.com
KRADS arkitektastofa
Verkefni: PLAYTIME
Styrkurinn að upphæð 750.000 kr. er veitttur til frekari þróunar á PLAYTIME, sem er farandvinnustofa ætluð nemum í arkitektúr sem arkitektastofan KRADS hefur þróað í samvinnu við danska leikfangaframleiðandann LEGO. Í hverri vinnustofu fara nemendur í gegnum eins konar hönnunarmaraþon þar sem þeim er einungis leyft að nota Legókubba til að miðla hugmyndum sínum og er markmiðið að í gegnum vinnu sína tileinki þeir sér ný verkfæri, og ekki síst ákveðið viðhorf til hönnunar, sem nýtist í starfi þeirra. Legókubbarnir hafa tvíþætt hlutverk í vinnustofunni. Fyrir flest okkar eru kubbarnir gamall æskuvinur og nátengdir tilfinningu af því frelsi sem felst í því að leika sér. Um leið skapa kubbarnir ákveðna mótstöðu, verandi mjög staðlað byggingarkerfi, þegar þeir eru eini miðillinn sem nemendum er leyft að nota í hönnun sinni. Í vinnustofunni er unnið með þessa andstæðu eiginleika kubbanna, frelsi og mótstöðu, og ekki síst með mikilvægi þess að leika sér í starfi sínu sem hönnuður. Vinnustofan hefur verið haldin fyrir nemendur í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, Arkitektskolen i Aarhus, Den Skandinaviske Designhøjskole i Randers og er á leið sinni á næstunni til m.a. Barcelona á Spáni og NY í Bandaríkjunum. KRADS arkitektastofa var stofnuð í lok árs 2006 af Kristjáni Erni Kjartanssyni, Kristjáni Eggertssyni, Kristoffer Juhl Beilman og Mads Bay Moller.
www.krads.info
Bóas Kristjánsson
Verkefni: 8045
Styrkurinn að upphæð 1.250.000 kr. er veittur til þróunar- og hönnunarvinnu á fatalínu 8045 fyrir karlmenn. Bóas Kristjánsson stofnaði 8045 ehf árið 2008 og sýndI hönnun sína á tískuvikunni í París í júní 2009. Myndir af litríkum peysum 8045 hafa birst og fengið jákvæða umfjöllun í virtum alþjóðlegum tískutímaritum og veftímaritum. Hjá 8045 vinna nú tveir klæðskerar og framleiðslustjóri auk hönnuðar. 8045 vinnur nú að áframhaldandi hönnun á hágæða fatalínu fyrir karlmenn, þar sem notuð verða meðal annars vistvænt unnin efni bæði jersey og prjón. Einnig er stefnt að aukinni þróunarvinnu með íslensk efni s.s. ull, roð og skinn. 8045 verður með forsýningu á hluta sumarlínu 2012 í Austurbæjarskólanum, laugardaginn 2. apríl 2011 og tekur þátt “Men’s wear” tískuviku í París í júní 2011.
www.eightyfortyfive.com
Hafsteinn Júlíusson
Verkefni: HAF
Styrkurinn að upphæð 1.000.000 kr. er veittur til frekari eftirfylgni á kynningarstarfi erlendis á vörumerkinu HAF, sem var kynnt í Mílanó fyrir tæpu ári síðan og hlaut góðar undirtektir og athygli. HAF býður upp á nýja vörulínu árlega og hefur hver vörulína ákveðinn strúktúr hvað varðar framsetningu, samsetningu og þema. HAF hefur reynt með vörum sínum að vekja fólk til umhugsunar um hin ýmsu gildi í lífinu, þar sem er unnið með hugtök eins og umhverfisvernd, heilbrigt líferni og hvíld. Til dæmis verkefnið Slim Chips sem er snakk úr pappír til átu og til þess fallið að vekja fólk til umhugsunar um ofneyslu ruslfæðis. Framundan hjá HAF er að setja upp sýningu hjá hinum þekkta hátísku fataframleiðanda Guiliano Fujiwara í Mílanó og hefur sýningarstjóri Salone Satellite einnig boðið HAF að setja upp sýningu þar sem viðfagnsefnið er hönnun eftir 50 ár. Hafsteinn útskrifaðist frá LHÍ 2008 með BA próf í vöruhönnun, 2009 og býr og starfar í Mílanó þar sem hann lauk nýverið Meistaranámi í innanhúss- og iðnhönnun.
www.hafsteinnjuliusson.com
Charlie Strand
Verkefni: Icelandic Fashion Design
Styrkurinn að upphæð 1.000.000 kr. er veittur til að ljúka hönnunarvinnu fyrir útgáfu bókarinnar, sem verður gefin út sumarið 2011. "Icelandic Fashion Design" fjallar um fjölbreyttan hóp íslenskra fatahönnuða og er metnaðarfull leið til kynningar á íslenskri fatahönnun hérlendis og erlendis.
www.charliestrand.com
Starfsnámsstyrkir
Hönnunarsjóður Auroru hefur styrkt hönnuði til starfsnáms síðustu ár en starfsnáms styrkjum er ætlað að fjölga tækifærum fyrir nýlega útskrifaða hönnuði á vinnumarkaði, auka færni þeirra og efla tengslanet innan greinarinnar. Þetta er í fyrsta skipti sem styrkirnir eru veittir til starfsnáms erlendis. Styrkina hljóta Birna Geirfinnsdóttir fær styrk til starfsnáms hjá Fraser Muggeridge Studio í London, sem er í eigu Fraser Muggeridge, Sarah Newitt & Stephen Barrett. Björgvin Friðgeirsson fær starfsnámsstyrk til að starfa hjá Soup, Kaliforniu, sem er í eigu John Bielenberg.
Úthlutun 23.mars - ítarefni
Anton Kaldal, Gunnar Þ.Vilhjálmsson og Steinar Farestveit